Stinnari og þéttari húð á 50 mínútum
Markmið meðferðar
Lift Summum andlitsmeðferðin gerir húðina stinnari og dregur samstundis úr þreytu og öldrunarmerkjum í andliti, á hálsi og bringu. Meðferðin er samblanda af einstaklega virkum innihaldsefnum sem auka stinnleika og þéttleika húðar ásamt sérstöku nuddi.
Árangur
Eftir 50 mínútur er húðin á andliti, háls og bringu stinnari og þéttari. Dregið hefur úr þreytu og öldrunarmerkjum eins og hrukkum og fínum línum.

Andlitslyfting án skurðaðgerðar
Markmið meðferðar
Með aldrinum höfum við tilhneigingu til að nota vöðvana sjaldnar, sem veldur því að húðin missir stinnleika sinn og útlínur slakna.
Hydradermie Lift mótar og stinnir andlitsvöðvana. Á aðeins nokkrum mínútum verður húðin sléttari, stinnari og frísklegri.
Árangur
Eftir fyrstu meðferð muntu sjá sýnilegan árangur. Andlitslyfting án skurðaðgerðar. Húðin hefur endurheimt tóninn og dregið hefur úr hrukkum og fínum línum. Þessi aðferð er eins og vöðvaþjálfun fyrir andlitið.
