Einstök rakagefandi meðferð
Markmið meðferðar
Hydra Summum er rakagefandi meðferð fyrir andlit. Rík af Hýalúronsýru sem þéttir, sléttir og gefur húðinni kröftugan raka. Sérsniðið nudd hámarkar virkni virkra efna í andlitsmeðferðinni.
Gefur húðinni kröftugan raka
Meðferð sem hentar fyrir alla. Markmið meðferðar:
- Þéttir húðina
- Dregur úr hrukkum og fínum línum
- Gefur húðinni kröftugan raka
Árangur
Eykur þéttleika í húðinni og dregur úr aldurseinkennum (hrukkum og fínum línum). Endurheimtir góðan raka og mýkt húðar.

Einstök djúpvirkandi meðferð
Markmið meðferðar
Hydradermie er einstök djúpvirkandi meðferð fyrir andlit, augu, háls og bringu þar sem unnið er með háþróað Hydradermie rafmagnstæki. Meðferðin örvar frumustarfsemi húðar þannig að hún nái að starfa á sem bestan máta.
Meðferðin er sérsniðin að húðgerð og markmiðum viðskiptavinar. Efnin í Hydradermie eru að vinna í húðinni í 24 tíma að lokinni meðferð. Eftir hvert skipti sérðu hvað Hydradermie meðferð gerir húðinni gott.
Sérsniðin meðferð að þinni húðgerð og markmiðum
- Gegn öldrunareinkennum
- Rakagefandi
- Hreinsandi
- Nærandi
- Jafna húðlit
- Róa og sefa viðkvæma húð
- Þétta húð og gefa fallegri ljóma
Árangur
Húðin verður þéttari, fær fallegri áferð, aukin ljóma og heilbrigðari.
